Erlent

Tilraunir Írana sýna að varnir BNA séu óþarfar

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.

Nýlegar flugskeytatilraunir Írana sanna að varnaráætlun Bandaríkjamanna í Evrópu er óþarfi að mati utanríkisráðherra Rússa, Sergei Lavrov. Hann telur tilraunirnar sanna að eldflaugarnar nái ekki lengra en 2000 kílómetra.

Bandaríkjamenn vilja varnir í Póllandi og Tékklandi til þess að verja herdeildir sínar og samherja sinna. Eldflaugar Írana myndu hins vegar ekki ná þangað samkvæmt utanríksráðherra Rússlands.

Eftir fordæmingar víða um heim hafa Íranar sagst vera opnir fyrir viðræðum um kjarnorkuáætlanir þeirra. Þeir hafa neitað ásökunum frá Vesturlöndum um að þeir séu að þróa kjarnavopn og segja kjarnorkuáætlun sína hafa friðsamleg markmið.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×