Erlent

Móðir Shannon ákærð

Shannon Matthews.
Shannon Matthews. MYND/Reuters

Karen Matthews, móðir hinnar níu ára gömlu Shannon sem hvarf í Yorkshire á Englandi og fannst 24 dögum síðar, hefur verið ákærð fyrir að tefja fyrir vinnslu málsins og vanrækslu.

Hvarf Shannon Matthews vakti mikla athygli á sínum tíma og komu ættingjar hennar fram í fjölmiðlum þar sem þeir grátbáðu ræningjann að sleppa henni. 24 dögum síðar kom hún í leitirnar heima hjá frænda kærasta móður sinnar en hann hafði falið hana undir rúmi.

Frændinn var handtekinn grunaður um ránið og í síðustu viku voru systir hans og móðir einnig handteknar grunaðir um aðild að málinu. Kærastinn var einnig handtekinn í síðustu viku þegar lögregla uppgötvaði fjölda barnaklámmynda í tölvunni hans.

Og nú hefur móðir stúlkunnar bæst í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×