Hillary vill sniðganga opnunarhátíð Ólympíuleikanna 8. apríl 2008 11:14 MYND/AFP
Hillary Clinton hefur hvatt George Bush Bandaríkjaforseta til að sniðganga opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking nema kínversk stjórnvöld geri meiriháttar breytingar á stefnu sinni í mannréttindarmálum. Hún sagði að með því myndu Bandaríkin undirstrika áhyggjur af ófriðnum í Tíbet og sambandi Kínverja við yfirvöld í Súdan. Clinton sagði að ofbeldið í Tíbet og misheppnaðar tilraunir yfirvalda í Kína til að stöðva þjóðarmorð í Darfur gæfu forsetanum tækifæri til að sýna styrk sinn sem leiðtoga. Bush hefur sagt að hann muni vera viðstaddur þar sem um sé að ræða íþróttaviðburð, en ekki stjórnmálaviðburð. Talsmaður Hvíta hússins sagði að af staða hans hefði ekki breyst. Barack Obama sem berst við Clinton um tilnefningu Demókrataflokksins sem forsetaefni þess sagði nýlega að hann væri ekki viss hvort Bandaríkin ættu að taka fullan þátt. Í síðustu viku tilkynnti Stephen Harper forsætisráðherra Kanada að hann myndi, líkt og Angela Merkel kanslari Þýskalands, sniðganga opnunarhátíðina. Ákvörðun þeirra og yfirlýsing Clinton lýsa vaxandi þrýstingi á Bandaríkjastjórn að bregðast við ofbeldi og aðgerðum Kína gagnvart lýðræðissinnum í Tíbet. Flestir helstu stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, meðal annars Nancy Pelosi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafa gengið langt í yfirlýsingum sínum í þessa veru en hafa þó ekki sagt berum orðum að forsetinn eigi að sniðganga leikana 8-24. ágúst.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira