Erlent

Norðurlandabúarnir sem rænt var í Sómalíu lausir úr haldi

Norðurlandabúunum tveimur sem rænt í Sómalíu, Svía og Dana, eru nú lausir úr haldi. Báðir eru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna.

Samkvæmt frétt Reuters fréttastofunnar umkringdu íslamskir byssumenn bíl mannanna, og óku með þá brott. Svíinn og Daninn höfðu verið í Bakool-héraði í þrjá daga að skipuleggja leit að jarðsprengjum.

Mannrán eru arðbær grein í Sómalíu og yfirleitt er farið vel með gísla áður en þeir eru látnir lausir í skiptum fyrir hátt lausnargjald.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×