Erlent

Frakkar afnema 35 stunda vinnuviku

Þrjátíu og fimm stunda vinnuvika heyrir nú sögunni til í Frakklandi.

Þingið þar í landi hefur samþykkt ný lög sem kveða á um að atvinnurekendur geta nú gert sérsaminga við verkalýðsfélög um vinnutíma og yfirvinnu.

Frá því að hann komst til valda í fyrra hefur Sarkozy forseti Frakklands kennt stuttri vinnuviku um að draga úr efnahagsuppgangi landsins. Því vildi hann þessa breytingu á vinnulöggjöfinni.

Hin nýju lög taka gildi í næsta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×