UPS-smyglið staðið yfir síðan 2005 Andri Ólafsson skrifar 13. mars 2008 10:37 Annþór Kristján Karlsson undir bláu teppi.
Í gögnum sem lögregla hefur lagt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt kemur fram að grunur leiki á að hraðsendingarsmyglið sem upp komst á Keflavíkurflugvelli í nóvember hafi staðið yfir síðan á vormánuðum 2005. Málið komst upp þegar rúmlega fimm kíló af hvítum efnum fundust við eftirlit lögreglu og tollgæslu í bifreið á vegum hraðflutningafyrirtækisins UPS. Einn starfsmaður UPS, Tómas Kristjánsson, var handtekinn og hefur hann setið í gæsluvarðhaldi síðan. Tveir bræður voru einnig handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en þeim var síðar sleppt. Þegar rannsókn málsins var vel á veg komin var handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan ef frá er talinn einn dagur sem Annþór eyddi á flótta undan lögreglu. Í gögnum lögreglu kemur fram að Annþór sé grunaður um að fjármagna smyglið og skipuleggja það. Þá er hann einnig grunaður um að hafa tekið á móti fíkniefnum sem smyglað var til landsins. Annþór hefur neitað aðild að málinu. Lögreglu finnst hins vegar framburður hans mjög ótrúverðugur þar sem hann hafi orðið margsaga um einstök atvik málsins. Rannsókn lögreglu á málum Annþórs hefur einnig leitt í ljós að hann eigi fjölda eigna sem hann hafi skráð á annað fólk í því skyni að blekkja yfirvöld. Hann hafi hins vegar ekki viljað tjá sig um fjárhag sinn og eignastöðu í yfirheyrslum.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira