Erlent

Rússar á leið til Tbilisi

Medvedev Rússlandsforseti
Medvedev Rússlandsforseti

Fullyrt er að Rússar séu flytja skammdrægar eldflaugar til Suður-Ossetíu og ætli að beina þeim að höfuðborg Georgíu. Yfirmaður rússneska hersins neitar því. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, situr á morgun neyðarfund Atlantshafsbandalagsins um ástandið í landinu.

Neyðarfundur utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja vegna ástandsins í Georgíu hefst í Brussel í Belgíu í fyrramálið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, situr fundinn en hún hélt til Brussel í morgun.

Deilt er um hvort Rússar standi við vopnahléssamkomulag sitt við Georgíumenn og ætli að kalla herlið sitt heim.

Georgíumenn segja svo ekki veri og þessar myndir sanni það. Rússneskir hermenn að keyra niður bíla sem georgíska lögreglan notaði sem vegatálma.

Yfirmaður rússnesk hersins sagði í morgun að byrjað væri að flytja herlið aftur til Suður-Ossitíu samkvæmt samkomulaginu. Aldrei hafi átt að kalla hermenn heim. Rússar hefðu haft friðargæslulið í héraðinu síðan 1992 og svo yrði áfram.

AFP fréttastofan hefur eftir ónafngreindum fulltrúum bandaríkjastjórnar að Rússar hafi flutt skammdræg flugskeyti til Suður-Ossetíu sem hægt verði að skjóta á Tíblísí, höfuðborg Georgíu. Því neita yfirmaður rússneska hersins. Engin þörf sé á slíkum vopnum á svæðinu.

Medvedev Rússlandsforseti varaði við því að grípa til viðlíka aðgerða og Georgíumenn gegn Rússum og öðrum íbúum í Suður-Ossetíu fyrir ellefu dögum sem hafi orðið til að kveikja ófriðarbál síðustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×