Bankaránum í Danmörku fjölgar um helming milli ára Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. júlí 2008 16:34 Lögregla á vettvangi bankaráns í Danmörku rétt fyrir síðustu áramót.
Bankaránum í Danmörku hefur fjölgað um helming það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra. Berlingske Tidende greinir frá því að ránin í ár séu 58 samanborið við 39 í fyrra. Samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku harma þetta enda hafði ránum fækkað mjög reglulega frá tímabilinu 2000 til 2002 þegar yfir 200 bankarán voru framin í landinu yfir allt árið. Þróunin í ár sé því í þveröfuga átt en á hinn bóginn verði að líta til þess að ræningjarnir hafi sjaldnast haft mikið upp úr krafsinu, oftast upphæð á bilinu 20 - 30.000 danskar krónur, auk þess sem meira en helmingur þeirra rána sem framin hafa verið í ár teljist nú þegar upplýst. Tjón bankanna vegna þessa sé því ekki ýkjamikið en hins vegar verði sum bankaútibú oftar fyrir barðinu á ræningjum en önnur. Því hafi verið gripið til þess ráðs í vinsælum ránsútibúum að koma upp öryggismyndavélakerfi sem vaktar svæðið fyrir utan bankana auk þess að taka í notkun vélrænan búnað sem taki við eða afhendi peninga með þeim hætti að ekki sé hægt að öðlast aðgang að reiðufé nema þegar viðskipti við gjaldkera eiga sér stað og þá aðeins þá upphæð sem viðskiptin snúast um.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Sjá meira