Erlent

Libýa stöðvar olíuútflutning til Sviss

Stjórnvöld í Líbýu hafa stöðvað allan olíuútflutning til Sviss til að mótmæla handtöku svissnesku lögreglunnar á Hannibal Gaddafi yngsta syni Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu.

Hannibal var í haldi lögreglunnar í tvo daga ásamt óléttri eiginkonu sinni eftir að þau voru ákærð fyrir að berja þjónusutlið sitt nýlega. Stjórnvöld í Líbýu hafa þar að auki krafist þess að Sviss biðjist opinberlega afsökunnar á handtökunni ella muni koma til frekari aðgerða gegn Sviss.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×