Ítalskur friðarsinni myrtur í Tyrklandi 12. apríl 2008 15:21 Listakonan Giuseppina Pasqualino di Marineo. MYND/APTN
Ítölsk listakona sem fyrirhugaði að ferðast á puttanum til Miðausturlanda í brúðarkjól til að efla heimsfrið fannst myrt í Tyrklandi í gær. Listakonan gekk undir nafninu Pippa Bacca en hét fullu nafni Giuseppina Pasqualino di Marineo. Lík hennar fannst í runnum nálægt borginni Gebze skammt frá Istanbul. Di Marineo hafði sagt að hún vildi sýna að hún gæti treyst góðmennsku heimamanna. Tyrknesk yfirvöld segjast hafa handtekið mann í tengslum við morðið. Fréttir segja að hann hafi leitt lögreglu að líkinu. Starfsmaður ítalska sendiráðsins sagði AP fréttastofunni að lögregla hefði fundið manninn þegar hann setti nýtt SIM kort í farsíma listakonunnar. Tyrkneskir fjölmiðlar nefna manninn MK sem munu vera upphafsstafir hans. Hann mun hafa hlotið dóm áður fyrir þjófnað. Ferðalag Pippa Bacca og nokkurra annarra listamanna var fyrirhugað frá Mílanó til Líbanon og gekk undir nafninu „Brúðir á ferðalagi." Hún hafði skilið við hópinn í Istanbul en ætlaði að hitta hann aftur í Beirút. Síðast sást til hennar 31. mars í borginni Gebze. Systir Pippa Bacca, sem hafði komið til Tyrklands til að leita hennar, bar kennsl á líkið. Ekki hefur verið greint frá því hvernig hún var myrt en hún verður krufin í Istanbul.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira