Átta unglingar ákærðir fyrir misþyrmingar á skólasystur 12. apríl 2008 09:52
Átta bandarísk ungmenni sem gengu í skrokk á skólasystur sinni og ætluðu að birta barsmíðarnar á netinu hafa verið formlega ákærð fyrir mannrán og líkamsárás. Þau eiga yfir höfði sér þungan dóm verði þau sakfelld. Sú sem varð fyrir árásinni er 16 ára. Þau sem réðust gegn henni eru á aldrinum 14 til 18 ára - sex stúlkur og tveir drengir. Stelpunni var boðið í hús þar sem setið var fyrir henni. Unglingspiltarnir voru á verði fyrir utan og vörnuðu stelpunni útgöngu á meðan unglingsstúlkurnar létu höggin dynja. Ástæðan fyrir árásinni er sögð sú að stelpan hafi móðgað þau sem réðust gegn henni með skrifum sínum á samskiptasíðunni MySpace á netinu. Þá var ákveðið að láta hnefana tala og birta myndbandið á vefveitunni YouTube og samskiptasíðum á borð við MySpace og Facebook. Á upptökunni má heyra hvar fórnarlambið er hvatt til að svara fyrir sig og berja frá sér sem hún gerir ekki. Henni er hent í vegg og hún barin. Stúlkan fékk heilahristing og hlaut ýmiskonar áverka. Upptakan var ekki birt á vefnum fyrr en lögregla birti hana í vikunni. Ungmennin átta gætu átt þungan fangelsisdóm yfir höfði sér en þau eru ákærð fyrir mannrán, líkamsárás og tilraun til að hafa áhrif á vitni. Að kröfu saksóknara verða ungmennin meðhöndluð sem fullorðin fyrir dómi og dæmt samkvæmt því. Ungmennin ganga laus gegn rúmlega tveggja milljóna króna tryggingu. Þeim er bannað að mæta í skóla, eiga samskipti hvert við annað eða nota vefinn meðan mál þeirra er til meðferðar. Þeim er einnig bannað að veita viðtöl.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira