Rússneska keisarafjölskyldan öll fundin Óli Tynes skrifar 30. apríl 2008 17:09 Nikulás keisari og fjölskylda hans. Myrt af bolsévikkar.
Rannsóknir vísindamanna hafa staðfest að líkamsleifar sem fundust í Rússlandi á síðasta ári voru af tveim börnum Nikulásar annars, síðasta keisara Rússlands. Bolsévikkar myrtu keisarafjölskylduna í byltingunni árið 1918. Með þessu eru jarðneskar leifar allrar keisarafjölskyldunnar fundnar. Byltingarmenn skutu fjölskylduna til bana í kjallaranum á húsi kaupmanns nokkurs í Yekaterinburg, sem er um 1450 kílómetra austan við Moskvu. Reynt var að eyða líkunum og leifunum fleygt í skurð. Eftir fall Sovétríkjanna voru líkamsleifar keisarahjónanna og þriggja dætra þeirra grafnar upp. Þau voru jarðsett á nýjan leik í keisaragrafhýsinu í kirkju Péturs og Páls postula í Sankti Pétursborg árið 1998. Meðal viðstaddra var Boris Yeltsin, fyrrverandi forseti Rússlands, sem lengi hafði barist fyrir því að keisarahjónunum yrði sá sómi sýndur. En við jarðsetninguna 1998 vantaði lík tveggja barnanna. Alexeis prins og Maríu hertogaynju. DNA rannsóknir í Bandaríkjunum hafa nú leitt í ljós að leifarnar sem fundust á síðasta ári voru af þeim. Þau munu því áður en langt um líður loks verða sameinuð fjölskyldu sinni á nýjan leik.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Fleiri fréttir Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Sjá meira