Erlent

Kína neyddi Nepal til að brjóta gegn Tíbetum

Ram Baran Yadav forseti Nepal.
Ram Baran Yadav forseti Nepal.

Kína þrýsti á Nepal að brjóta gegn friðsömum mótmælendum frá Tíbet samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasamtökum. Eiga þeir að hafa brotið á mannréttindum þeirra með handökum að handahófi, kynferðislegri misnotkun á konum og barsmíðum í fangelsi.

Tíbverskir útlagar hafa reglulega mótmælt í Kathmandu og krafist sjálfstæði þjóðar sinnar. Hafa mannréttindasamtökin Human Rights Watch fylgst náið með tíbverskum mótmælendum og halda þeir þessu fram á grundvelli þeirrar athugunar. Samtökin furða sig á að yfirvöld sem komust til valda vegna mótmæla almennings gæti farið svona með aðra mótmælendur.

Meira en 20 þúsund Tíbetar búa í Nepal. Þeir flúðu margir hverjir heimili sín eftir misheppnaða uppreisn gegn Kina árið 1959. Skýrsla mannréttindasamtakanna segir að 8350 Tíbetar hafi verið handteknir frá 10 mars til 18 júlí og margir þeirra oftar en einu sinni.

Nepal lítur á Tíbet sem hluta af Kína. Yfirvöld þar segja Tíbeta velkomna að búa í Nepal en þeir megi ekki athafnast á nokkurn hátt gegn Kína. Embættismenn Kína neita þessum ásökunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×