Erlent

Hitler veldur enn og aftur hneykslan

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar

Adolf Hitler, leiðtogi nasista og Þýskalands í seinni heimstyrjöldinni, heldur enn áfram að valda usla í Þýskalandi rúmlega sextíu árum eftir dauða sinn en nú sem vaxstytta.

Hið þekkta vaxmyndasafn Madame Tussauds hyggst opna útibú í Berlín á laugardaginn en á safninu má finna vaxmynd af Hitler sem á að endurspegla síðustu daga hans. Vakti eftirmyndin talsverða athygli þegar blaðamönnum var boðið á safnið í dag og fannst mörgum undarlegt að sjá nasistaleiðtogann á safninu í hópi með poppstjörnum, leikurum, íþróttamönnum og öðru þekktu fólki úr samtímanum.

Í Þýskalandi er ólöglegt að birta nasistamerki og list sem upphefur Hitler. Aðstandendur safnsins segja að af þeim sökum verði allt gert til þess að koma í veg fyrir að gestir láti taka myndir af sér með Hitler.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×