Stjórnarandstæðingar handteknir í Simbabve 16. apríl 2008 12:23
Öryggissveitir í Simbabve hafa í morgun handtekið um fimmtíu stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar í landinu fyrir að hvetja til verkfalla. Með aðgerðum sínum vildu þeir knýja yfirvöld til að birta úrslit forsetakosninga í landinu sem fóru fram fyrir átján dögum. Verkföll hafa reyndar lítil áhrif, fjórir af hverjum fimm Simbabvebúum eru atvinnulausir. Efnahagur landsins er í rúst, verðbólga um hundrað þúsund prósent. Löggæsluyfirvöld segja stærsta stjórnarandstöðuflokkinn, MDC, vilja koma af stað átökum með því að hvetja til verkfalla. Talsmaður MDC segir að rúmlega fimmtíu stuðningsmenn flokksins hafi verið handteknir í aðgerðum í úthverfum höfuðborgarinnar, Harare, og í Bulawayo. Öryggislögregla segist hafa handtekið þrjátíu stjórnarandstæðinga sem verði ákværðir fyrir ólæti, að hindra lögreglu í starfi og að þvinga vinnandi fólk til að leggja niður vinnu sína. Liðsmenn MDC ráða nú ráðum sínum og ræða hvort enn eigi að krefjast þess að fólk leggi niður vinnu og haldi sig heima þar til úrslit forsetakosninganna verði birt. Svo virðist sem það hafi ekki gengið eftir í dag þar sem þau fyrirtæki sem enn séu starfandi hafi verið opin í morgun. Átján dagar eru síðan forsetakosningarnar fóru fram og kjörstjórn enn ekki birt úrslitin. Tekist er á um hvort Morgan Tsvangirai, frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, hafi sigrað eða hvort kjósa þurf aftur milli hans og Roberts Mugabe, forseta. Ástandið í Simbabve verður án efa til umræðu á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Þann fund munu nokkrir leiðtogar Afríkuríkja sitja. Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, stýrir fundinum. Hann hefur tekið að sér hlutverk sáttasemjara í málinu og vildi helst að það yrði ekki rætt á vettvangi öryggisráðsins meðan ástandið í landinu er ótryggt.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira