Talibanar funda með afgönskum stjórnvöldum 18. nóvember 2008 12:42
Fulltrúar afganskra stjórnvalda munu á næstunni eiga fund með fyrrverandi liðsmönnum talibana í Sádi-Arabíu. Tilgangurinn er að reyna að binda enda á skæruhernað talibana. Núverandi leiðtogar talibana hafa sagt að þeir séu ekki tilbúnir til neinna viðræðna meðan erlendir hermenn séu í Afganistan. Þar eru nú um 70 þúsund erlendir hermenn, þar af 32 þúsund frá Bandaríkjunum. Hamid Karzai, forseti Afganistans, segir að sú krafa sé óaðgengileg. Hann hefur hins vegar ítrekað boð sitt um að funda með klerkinum Ómari sem er æðstur talibana og mjög handgenginn al-Qaida. Ómar hefur áður hafnað því boði. En talibanar skiptast í nokkuð margar fylkingar. Fréttaskýrendur segja að ríkisstjórnin og vestrænir bandamenn hennar vonist til þess að geta átt samvinnu við hina hófsamari meðal þeirra og kannski einstaka stríðsherra og einangra þannig harðlínuöflin og al-Qaida. Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í síðasta mánuði að þeir væru reiðubúnir að sættast við talibana ef stjórnvöld í Afganistan nái samkomulagi við þá. Hins vegar komi engir samningar við al-Qaida til greina. Barack Obama, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur sömuleiðis sagt að hann sé reiðubúinn til viðræðna við hófsamari talibana.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira