Erlent

X-Men stjarna verður raunverulegur prófessor

Hollywood-stjarnan Patrick Stewart sem leikur prófessor Xavier í X-Men myndunum er nú orðinn raunverulegur prófessor. Hann var gerður að prófessor í leiklist við Huddersfield háskólann við hátíðlega athöfn í gærdag.

Stewart segir að það sé honum mikill heiður að hafa hlotið þennan titil en hann hefur kennt í leiklistardeild háskólans frá árinu 2004. "Þessi háskóli er frammúrskarandi menntastofnun og ég er stoltur af því að tilheyra starfsliðinu hér," segir Stewart.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×