Erlent

Japanskir sjómenn í umfangsmiklu verkfalli í dag

Japanskir sjómenn efna til umfangsmesta verkfalls í sögu samtaka þeirra í dag.

Um 250.000 sjómenn taka þátt í verkfallinu sem nær yfir allt landið. Sjómenn vilja með verkfallinu reyna að knýja stjórnvöld til þess að lækka olíukostnað sinn en verð á svartolíu hefur þrefaldast í Japan frá árinu 2003.

Talið er að um 85.000 sjómenn muni missa vinnu sína ef heimsmarkaðsverð á olíu fer yfir 150 dollara á tunnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×