Vilja skaðabætur vegna sambandsleysis í Basel SB skrifar 26. júní 2008 23:04 Þetta var það eina sem þýskir áhorfendur sáu í nokkrar mínútur þegar útsendingin rofnaði.
UEFA gæti þurft að borga sjónvarpsstöðvum í Evrópu himinháar skaðabætur vegna mistaka sem ollu því að útsendingin rofnaði í miðjum undanúrslitaleik Þýskalands og Tyrklands. Íslenskir áhorfendur misstu af tveimur mörkum. Yfirmaður íþróttadeildar ZDF í Þýskalandi kallaði tæknibilunina "mest pirrandi bilun sem hægt er að hugsa sér!" Tugmilljónir áhorfenda misstu af tveimur mörkum þegar þrumuveður olli rafmagnsleysi í Vín. Vararafstöð bilaði og þar með datt merkið út og áhorfendur sáu ekkert nema vandræðalega þuli sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Fyrirfram var búist við því að leikurinn myndi slá áhorfsmet í Þýskalandi. Yfir 30 milljónir voru límdar við sláinn. Nikolaus Brender, yfirmaður hjá ZDF, segir að áhorfið hafi snarlækkað þegar útsendingin rofnaði. Samtals greiddi ZDF ásamt sjónvarpsstöðinni ARD 115 milljónir Evra fyrir sjónvarpsréttinn á EM. Í grein Der Spiegel um málið kemur fram að samtals hafi UEFA fengið greiddar 800 milljónir Evra fyrir sjónvarpsréttinn frá 180 löndum. Áhorfendur í Þýskalandi voru heppnari en við hér á frónni. ZDF gat notað merkið frá ríkissjónvarpinu í Sviss sem naut undanþágu frá útsendingu UEFA. Þannig misstu þýskir áhorfendur ekki af neinum mörkum en hljóð og mynd voru ekki samstillt. Það segja þýskir áhorfendur þó skárra en að sjá ekkert yfir höfuð. "Þetta var röð af óheppilegum tilviljunum," sagði Alexandre Fourtoy, yfirmaður tæknideildar UEFA. "Við hörmum að þetta átti sér stað." UEFA hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að mistökin muni ekki endurtaka sig á sunnudaginn þegar úrslitaleikurinn fer fram.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira