Segir Barbie-dúkkur eyðileggja íranska menningu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. apríl 2008 19:52 Írani skoðar vestræn leikföng í verslun. MYND/AP
Barbie-dúkkur og önnur vestræn leikföng munu hafa eyðileggingaráhrif á þjóðfélag og menningu Írans, að sögn Ghorbans Ali Dori Najafabadi, yfirsaksóknara landsins. Þetta ritaði hann í bréf til Parviz Davoudi varaforseta sem birt var í dagblaðinu Mardom Salari í gær. Þar stóð enn fremur að ýmsar nafngreindar vestrænar söguhetjur, s.s. Leðurblökumaðurinn, Köngulóarmaðurinn og Harry Potter, ásamt vestrænum tölvuleikjum ættu að vera menningarlegum leiðtogum landsins til viðvörunar. Íran væri þriðja stærsta innflutningsland leikfanga í heiminum og áðurnefnd vestræn öfl gætu verið mikil ógn við persónuleika og einkenni þeirrar kynslóðar sem nú væri að alast upp. Najafabadi, sem auk saksóknaraembættisins skipar áhrifastöðu innan íslamska klerkaveldisins, vakti athygli á því í bréfi sínu að til hliðar við löglegan leikfangainnflutning væri miklu magni leikfanga smyglað til landsins og þeir sem að því stæðu létu menningarleg gildi víkja fyrir gróðavon. Vaxandi þykkju gætir nú í samskiptum Írans og Bandaríkjanna vegna kjarnorkuáætlunar Írana sem þeir fullyrða að sé eingöngu til friðsamlegrar raforkuframleiðslu. Á sama tíma þykir íslömskum áhrifamönnum vesturvæðing þjóðarinnar keyra úr hófi fram og benda oft og tíðum opinberlega á þær menningarlegu hættur sem þeir telja fylgja slíkri þróun. Reuters greindi frá.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira