Gary Glitter sleppt úr fangelsi 19. ágúst 2008 14:03 Lögreglumenn fylgja Glitter í réttarsal.
Barnaníðingnum og rokkaranum Gary Glitter var sleppt úr fangelsi í Víetnam í gær eftir að hafa setið inni í rúm tvö ár fyrir að misnota tvær stúlkur. Dómur Glitters var styttur vegna góðrar hegðunar, og heldur hann nú heim til Bretlands þar sem hann hyggst leita sér lækninga vegna versnandi heyrnar og hjartveiki. Glitter var handtekinn árið 2005 þegar tvær stúlkur, tíu og ellefu ára, sökuðu hann um að hafa misnotað sig. Málið var upphaflega rannsakað sem barnanauðgun, en við henni getur legið dauðarefsing í Víetnam. Því var breytt þegar Glitter greiddi fjölskyldum stúlknanna sem samsvarar 150 þúsund krónum í bætur. Þó Glitter sé laus allra mála í Víetnam er ekki víst að heimkoman verði vandræðalaus. Hann var dæmdur til fangavistar árið 1999 fyrir að hafa undir höndum þúsundir barnaklámsmynda. Hann flutti í kjölfarið til Spánar, þá Kúbu og svo til Kambódíu þaðan sem honum var vísað úr landi vegna meintra kynferðisbrota gegn börnum. Glitter getur átt von á því að vera handtekinn við komuna til London vegna afbrota í Bretlandi og annarsstaðar.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórn Talíbana fagnar fimm árum Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Sjá meira