Hætta heimkvaðningu hermanna frá Írak í lok júlí 11. apríl 2008 12:15
Bandaríkjamenn ætla að hætta heimkvaðningu hermanna frá Írak í lok júlí. Demókratar segja Bush Bandaríkjaforseta ætla að eftirláta arftaka sínum að hreinsa til í Írak. Byrjað var að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak snemma í fyrra. Mat manna var að það hefði haft áhrif. Ofbeldisverkum og árásum hefði fækkað til muna. Síðan er liðinn nokkur tími og svo virst sem herskáum hafi vaxið fiskur um hrygg. Árásum hefur fjölgað og mannfall í síðasta mánuði meira en mánuðina á undan. Ákveðið var að kalla viðbótarherliðið aftur í áföngum og átti því að ljúka í lok júlí. Þá yrðu bandarískir hermenn í Írak aftur 140 þúsund líkt og áður en byrjað var að bæta við. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að heimkvaðningu yrði hætt eftir það. David Peatreus, herforingi í Írak, sagði við yfirheyrslur hjá hermálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í vikunni að ástandið í Írak hefði batnað en væri þó enn óásættanlegt. Hann lagðist gegn frekari heimkvaðningu og bað um fjörutíu og fimm daga frest frá lokum júlí til að meta stöðuna og ráðleggja síðan um næstu skref. Bush varð við því og sagði Peatreus fá þann tíma sem hann þyrfti. Demókratar á Bandaríkjaþingi segja Bush vera að tefja málin með þessari ákvörðun. Hann ætli að varpa málinu yfir á arftaka sinn sem tekur við í janúar á næsta ári. Það sé ábyrgðarleysi, Bandaríkjamenn vilji svör frá forseta sínum núna.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira