Fundu teikningar af Auschwitz-búðunum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. nóvember 2008 08:37
Teikningar af útrýmingarbúðum nasista í Auschwitz í Póllandi fundust í Berlín um helgina. Þýska dagblaðið Bild greinir frá því að 28 blaðsíður af teikningum sem talið er augljóst að séu af hinum illræmdu Auschwitz-Birkenau-útrýmingarbúðum skammt vestur af Kraká í Póllandi. Á teikningunum má glögglega sjá herbergi sem merkt er Gaskammer eða gasklefi og annað sem ber einfaldlega titilinn Leichenkeller, eða líkkjallari, svo huggulega sem það hljómar. Hans-Dieter Kreikamp, forstöðumaður ríkisskjalasafnsins í Berlín, segir teikningarnar vera óræka sönnun helfararinnar og þess ætlunarverks nasista að útrýma evrópskum gyðingum á skipulegan hátt en hópur svokallaðra endurskoðunarsinna, sem meðal annars sagnfræðingar skipa, hefur látið í veðri vaka að helförin hafi í raun verið áróðursbragð gyðinga. Teikningarnar eru merktar dagsetningunni 23. október 1941 og teljast stórmerkilegt sagnfræðilegt gagn séu þær ófalsaðar. Blaðamaður Bild skrifar að hverjum þeim, sem komið hafi á einhvern hátt að skipulagningu Auschwitz-búðanna, hafi hlotið að vera fullljós hinn myrki tilgangur þeirra. Áætlað er að á tímabilinu frá hausti 1941 til ársins 1944 hafi um það bil 1,1 milljón gyðinga týnt lífinu í Auschwitz en búðirnar illræmdu voru einnig starfsvettvangur Josefs Mengele, hins svonefnda engils dauðans, sem stundaði vafasama læknisfræði sína í skjóli þriðja ríkis Adolfs Hitler.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira