Erlent

Mikill skortur á heimilislæknum í Danmörku

Heimilislæknar eru að verða takmörkuð auðlind í Danmörku. Nú er svo komið að hver starfandi heimilislæknir hefur að meðaltali 1.583 sjúklinga á sinni könnu og 180 þúsund Danir líða fyrir þennan skort.

Það gerist með þeim hætti að erfiðara er að ná í lækni í símatíma og bið eftir tíma hjá lækninum er mun lengri en margir geta sætt sig við. Afleiðingar þessa geta orðið þær að fólk sem glímir við alvarleg veikindi getur orðið illa úti og jafnvel lent í tvísýnni stöðu. Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hyggjast bregðast við með því að fá starfandi lækna til að fara seinna á eftirlaun en ella.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×