Mynduðu lögreglumenn lemja þrjá menn fyrir umferðarlagabrot 7. maí 2008 12:58
Bandaríkjamenn eru æfir vegna myndbands sem birt var í gærkvöldi. Það sýnir hóp lögreglumanna í Fíladelfíu berja þrjá menn sem þeir höfðu stöðvað vegna umferðalagabrots. Það var myndatökumaður svæðisstöðvar í borginni sem náði atburðinum á myndband. Hann var á ferð í þyrlu yfir vettvanginum. Þrír lögreglubílar stöðvuðu ökutækið. Lögreglumennirnir í þeim dróu síðan þremenningana út úr honum. Þeim er haldið niðri, einn er kýldur og annar barinn með kylfu. Sparkað er í mennina. Talsmaður lögreglu sagði þetta líta illa út en yfirvöld vildu ekki dæma í málinu áður en það hefði verið kannað ofan í kjölinn. Að sögn talsmanns lögreglu voru lögreglumennirnir sem stöðvuðu þremenningana í útkalli vegna skotárásar nærri vettvanginum. Lögreglumenn í Fíladelfíu hafa verið á nálum síðan á laugardaginn þegar starfsbróðir þeirra var skotinn til bana þar sem verið var að fremja rán. Einn þriggja ræningja í því máli gengur enn laus. Lögmaður þremenninganna segir myndbandið sýna lögreglu beita óhóflegu valdi í smávægilegu máli. Honum hafi verið tjáð af lögreglu að þremenningarnir verði kærðir fyrir líkamsárás gegn lögreglumönnunum, óvíst er hvort lögreglumennirnir verða kærðir.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Ted Turner er látinn Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Sjá meira