Viðurkennir að Berlínarbollur séu innfluttar SB skrifar 11. júní 2008 16:50 Yfirlýsing hefur borist frá Bakarameistaranum.
Í yfirlýsingu frá Bakarameistaranum kemur fram að auk kleinuhringja og hnetuvínarbrauða í bakaríum keðjunnar séu Berlínarbollurnar og smjörhornin einnig innflutt frosin. Það stangast á við fyrri orð framkvæmdastjóra Bakarameistarans. Áður hafði framkvæmdastjóri Bakarameistarans staðhæft að einungis kleinuhringirnir og hnetuvínarbrauðin væru innflutt. "Þær vörutegundir sem fluttar eru inn og seldar í bakaríum Bakarameistarans eru kleinuhringir, pekan-vínarbrauð, Berlínarbollur og smjörhorn (croissant)," segir í yfirlýsingu Vigfúsar Kr. Hjartarsson, framkvæmdastjóra Bakarameistarans. Í viðtali við Vísi þann 6. júní sagði Vigfús: „Eina sem við flytjum inn eru kleinuhringir. Það er af hagkvæmnisástæðum." Daginn eftir bætti hann þó við eftir að afgreiðslustúlka í bakaríinu Suðurveri greindi frá því að fleiri vörur væru fluttar inn frostnar að hnetuvínarbrauðin væru innflutt. Yfirlýsingin frá Bakarameistaranum staðfestir orð bakarísstelpunnar sem sagði: . „Ég man að hnetuvínarbrauðið, skinkuhornin og kleinuhringirnir kom allt frosið frá útlöndum." Vigfús sagði í samtali við Vísi fyrir skömmu: "Mér yfirsást þessar tvær vörur í upphafi málsins að öðru leyti vísa ég í yfirlýsingu mína um málið." Yfirlýsingu Vigfúsar má lesa í heild sinni hér að neðan. --- Yfirlýsing frá Bakarameistaranum - vegna frétta um erlent bakkelsi og „falsaða vöru" Síðustu daga hafa birst fréttir á visir.is sem snúast að hluta til um að Bakarameistarinn selji erlent bakkelsi til viðskiptavina sinna. Gefið er í skyn að reynt hafi verið að fela það fyrir neytendum. Þá er talað um að selt sé afþítt, upphitað bakkelsi. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning og að gefnu tilefni er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram: Hjá Bakarameistaranum eru framleiddar um það bil 400 mismunandi vörutegundir. Alla jafna eru um 200 mismunandi vörutegundir í boði hverju sinni. Þær vörutegundir sem starfsfólk Bakarameistarans framleiðir ekki, en eru seldar í bakaríum þess, eru að jafnaði 2-3. Alls er um að ræða fjórar vörutegundir. Aldrei hefur verið reynt að fela eða villa um fyrir viðskiptavinum Bakarameistarans að um aðkeypta/erlenda framleiðslu sé að ræða. Til dæmis hafa verið haldnir „amerískir dagar" og „danskir dagar" þar sem ekki ætti að fara fram hjá viðskiptavinum að verið er að kynna vörur frá viðkomandi löndum. Þær vörutegundir sem fluttar eru inn og seldar í bakaríum Bakarameistarans eru kleinuhringir, pekan-vínarbrauð, Berlínarbollur og smjörhorn (croissant). Eins og að framan var getið eru sjaldnast fleiri en 2-3 erlendar vörutegundir á boðstólum. Bakarameistarinn flytur inn í fyrrnefndar vörueiningar frosið deig af virtum framleiðendum þar sem gæði, ferskleiki og hagkvæmt verð vörunnar eru í fyrirrúmi. Deigið er síðan afþítt og bakað - vel að merkja - í hinum sex bakaríum sem rekin eru á vegum Bakarameistarans á höfuðborgarsvæðinu. Allar framleiðsluvörur Bakarameistarans eru unnar í bakaríi fyrirtækisins í Suðurveri. Deig er síðan flutt til bakaríanna og bakað þar. Með þessu móti er tryggt að viðskiptavinir Bakarameistarans fái ávallt nýbakað bakkelsi allan daginn.
Tengdar fréttir Pólsk brauð í bakaríum Myllunnar Fyrrverandi bakari hjá Myllunni segir brauðið sem Myllan selur í Hagkaupum flutt inn frá Póllandi; honum hafi verið sagt að ljúga þegar fólk spurði hvort bakkelsi væri bakað á staðnum. 10. júní 2008 12:07 Frosið brauð sagt bakað á staðnum Stórmarkaðurinn Krónan auglýsir brauð sem sé "bakað á staðnum". Deigið er hins vegar flutt til landsins frosið og forbakað og aðeins hitað upp í stórmörkuðunum. Framkvæmdastjóri Bakarameistarans segir bakstur lögverndaða iðn. 6. júní 2008 12:30 Ekki gott að selja falsaða vöru "Það er slæmt ef verið er að blekkja neytendur," segir neytendafrömuðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, Doktor Gunni, um fréttir Vísis af starfsaðferðum bakaría og stórmarkaða. Vinsælt bakkelsi er flutt inn frosið frá Danmörku. 10. júní 2008 14:35 Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum „Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur. 9. júní 2008 12:58 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira
Pólsk brauð í bakaríum Myllunnar Fyrrverandi bakari hjá Myllunni segir brauðið sem Myllan selur í Hagkaupum flutt inn frá Póllandi; honum hafi verið sagt að ljúga þegar fólk spurði hvort bakkelsi væri bakað á staðnum. 10. júní 2008 12:07
Frosið brauð sagt bakað á staðnum Stórmarkaðurinn Krónan auglýsir brauð sem sé "bakað á staðnum". Deigið er hins vegar flutt til landsins frosið og forbakað og aðeins hitað upp í stórmörkuðunum. Framkvæmdastjóri Bakarameistarans segir bakstur lögverndaða iðn. 6. júní 2008 12:30
Ekki gott að selja falsaða vöru "Það er slæmt ef verið er að blekkja neytendur," segir neytendafrömuðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, Doktor Gunni, um fréttir Vísis af starfsaðferðum bakaría og stórmarkaða. Vinsælt bakkelsi er flutt inn frosið frá Danmörku. 10. júní 2008 14:35
Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum „Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur. 9. júní 2008 12:58