PSV meistari - De Graafschap enn í fallhættu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. apríl 2008 14:55 Leikmenn Vitesse brjóta hér á markaskoraranum Danko Lasovic í dag. Nordic Photos / AFP
PSV varð í dag hollenskur meistari í knattspyrnu fjórða árið í röð eftir 1-0 útisigur á Vitesse í dag. Danko Lasovic skoraði eina mark leiksins á 47. mínútu en PSV hefði dugað jafntefli til að tryggja sér titilinn. Ajax varð í öðru sæti deildarinnar með 69 stig, þremur á eftir PSV. Ajax vann í dag öruggan 5-1 sigur á Heracles. Liðin í 2.-5. sæti taka þátt í umspili um eitt sæti í Meistaradeild Evrópu en PSV er með öruggan þátttökurétt í Meistaradeildinni. Feyenoord lenti í sjötta sæti og verður því ekki með í Meistaradeildinni í haust. Ajax, NAC, Twente og Heerenveen taka þátt í umspilskeppninni. Þau þrjú lið sem ekki komast í Meistaradeildina keppa í UEFA-bikarkeppninni. Feyenoord á þó möguleika á að koma sér í UEFA-bikarkeppninna með sigri á Roda JC í úrslitum bikarkeppninnar. Annars tekur liðið þátt í umspilskeppni um þátttökurétt í Intertoto-keppninni. Heerenveen vann í dag 5-0 sigur á Excelsior sem féll niður í neðsta sæti deildarinnar og féll um deild. Arnór Smárason kom ekki við sögu hjá Heerenveen í dag. VVV Venlo bjargaði sér úr botnsæti deildarinnar og frá falli um stundarsakir að minnsta kosti með sigri á De Graafschap, 3-0. Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn með De Graafschap. VVV og De Graafschap þurfa nú að fara í umspilskeppni ásamt sex liðum úr B-deildinni um tvö sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. AZ Alkmaar vann í dag 1-0 sigur á Sparta Rotterdam og varð í ellefta sæti deildarinnar. Aron Einar Gunnarsson kom ekki við sögu hjá AZ í dag. Liðin í 11.-15. sæti þurfa ekki að taka þátt í neinni umspilskeppni nú að tímabilinu loknu sem og meistarar PSV og Excelsior sem er þegar fallið í B-deildina. Tímabilinu er því lokið hjá AZ.
Fótbolti Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjá meira