Fjöldi ungra Dana með klamydíu tvöfaldaðist á tíu árum 21. maí 2008 08:07
Fjöldi ungra Dana sem þjáist af kynsjúkdóminum klamydíu hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum og veldur það heilbrigðisyfirvöldum landsins miklum áhyggjum. Greint er frá þessu í blaðinu Politiken. Þar segir að samkvæmt tölum frá Lyfjatæknistofnun ríkisins hafi tæplega 26.000 Danir á aldrinum 15 til 29 ára greinst með klamydíu á síðasta ári. Fyrir tíu árum síðan var fjöldinn tæplega 13.000 manns. Sérfræðingar hafa miklar áhyggjur af þessari þróun því ef klamydía er ekki meðhöndluð strax getur hún haft alvarlegar langtímaafleiðingar í för með sér, má þar meðal annars nefna ótímabær fósturlát og alvarlega kvilla meðan á meðgöngu stendur. Talið er að tala þeirra Dana sem sýktir eru af klamydiu sé mun hærri en tölur Lyfjatæknistofnunarinnar segja til um. Raunar hefur verið áætlað að 10% af öllum ungum Dönum beri með sér þennan sjúkdóm. Það helgast af því að erfitt er að finna hvort maður er sýktur eða ekki. Engin særindi né útbrot fylgja þessum sjúkdómi. Ástæður þess að sjúkdómurinn breiðist svo hratt út eru taldar minnkandi notkun getnaðarvarna og ónóg fræðsla um sjúkdóminn.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira