Innlent

Ekki allir F-lista menn á móti Ólafi

Þótt að annar og þriðji maður á F-lista Frjálslyndra og óháðra, þær Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir, styðji ekki við nýjan meirihluta eru fjórði, fimmti og sjötti maður honum hlynntur. Þetta eru Þau Ásta Þorleifsdóttir, Anna Sigríður Ólafsdóttir, sem er reyndar dóttir Ólafs F. Magnússonar, og Kjartan Eggertsson.

Af samtölum við Ástu og Kjartan má ráða að í nokkurn tíma hafi óánægja verið í röðum fylgismanna Ólafs með hversu skarðann hlut listi þeirra bar frá borði. Sérstaklega er nefndur skortur á samráði og óánægja með hversu fá sæti í nefndum og ráðum borgarinnar komu í hlut fólks úr röðum Frjálslyndra og óháðra.

Þá er það skoðun margra fylgismanna Ólafs að stefnuskrá nýja meirihlutans sé í öllum aðalatriðum ótrúlega lík þeirri stefnuskrá sem F-listi lagði fram fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.


Tengdar fréttir

Tuttugu mínútur í sjö

Ólafur F Magnússon hringdi í Dag B Eggertsson borgarstjóra tuttugu mínútum áður en nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur á blaðamannafundi á Kjarvalsstöðum klukkan 19:00. Þetta kom fram í viðtali við Dag á Stöð 2 fyrir stundu.

Framsókn fyllir nefndir á kostnað frjálslyndra

Vægi frjálslynda flokksins í ráðum og nefndum borgarinnar er í engu samræmi við niðurstöður síðustu borgarstjórnarkosninga þegar flokkurinn hlaut um 10 prósenta fylgi.

Farsakenndur dagur

"Þessi dagur hefur einkennst af vantrú og er eiginlega hálfgerður farsi...," sagði Dagur B. Eggertsson fráfarandi borgarstjóri í samtali við Stöð 2 nú rétt í þessu.

Funduðu heima hjá Kjartani

Nýr meirihluti borgarstjórnar var myndaður heima hjá Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Kjartan býr að Hávallagötu 42 í Reykjavík.

Björn Ingi lagði grunn að valdaleysi sínu með svikum við D-flokk

„Aldrei var nein samstaða innan þess hóps, sem myndaði meirihluta á rústum OR/REI fyrir 100 dögum og þar sem Dagur B. Eggertsson varð borgarstjóri. Hópurinn hefur ekki getað lagt fram málefnaskrá og lét reka á reiðanum í fjölda mála“ skrifar Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á heimasíðu sína nú í kvöld í kjölfar nýs meirihluta í borgarstjórn.

Nýi meirihlutinn í beinni á Vísi

Blaðamannafundur nýja meirihlutans í borginni er í beinni útsendingu á Vísi.is. Hægt er að horfa á hann með því að smella hér.

Nýr meirihluti boðar blaðamannafund klukkan 19:00

Sjálfstæðisflokkurinn hefur myndað nýjan meirihluta með Ólafi F. Magnússyni borgarfulltrúa Frjálslyndaflokksins. Nýr meirihluti hefur boðað til blaðamannafundar á Kjarvalsstöðum klukkan 19:00.

Ólafur F. nýr borgarstjóri

Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir hjá nýjum borgarmeirihluta á Kjarvalsstöðum kom fram að Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi F-listans verður borgarstjóri á fyrri hluta kjörtímabilsins. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson mun vera borgarstjóri á síðari hluta kjörtímabilsins.

Neitaði að tjá sig um heilsuna

Ólafur F Magnússon nýr borgarstjóri Reykvíkinga neitaði að svara spurningum fjölmiðla um heilsu sína. Honum fannst spurningin óveiðeigandi en mikið hefur verið rætt um heilsu Ólafs F eftir að hann tók sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×