Erlent

Mótmæli í Taílandi enn á ný

Rauðar skyrtur í stað gulra Í stað gulklæddu mótmælendanna, andstæðinga Thaksins Shinawatra, eru nú komnir rauðklæddir stuðningsmenn hans út á götur Bangkok að mótmæla.
Rauðar skyrtur í stað gulra Í stað gulklæddu mótmælendanna, andstæðinga Thaksins Shinawatra, eru nú komnir rauðklæddir stuðningsmenn hans út á götur Bangkok að mótmæla. fréttablaðið/AP

Taíland, AP Þúsundir manna héldu út á götur Bangkok í gær til að mótmæla ríkisstjórn landsins, en að þessu sinni voru það ekki andstæðingar Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, sem stóðu að mótmælunum, heldur stuðningsmenn hans.

Mótmælendur sögðust ætla að fjölmenna fyrir utan þinghús borgarinnar í dag, en hétu því að hindra ekki störf þingsins.

„Jú, við ætlum að fara til þingsins, en við ætlum að leyfa þingmönnum að fara inn og út,“ sagði Korkaew Pikunthong, einn leiðtoga mótmælendanna.

Samtök mótmælendanna nefna sig Lýðræðisbandalag gegn einræði, og boða margs konar mótmælaaðgerðir allt þar til Abhisit Vejjajiva forsætisráðherra leysir upp þing og boðar til nýrra kosninga. Mótmælendur segja að í reynd hafi hann komist til valda með stjórnarbyltingu fyrr í þessum mánuði.

Vejjajiva tók við sem forsætisráðherra eftir langvinn mótmæli andstæðinga Thaksins gegn stjórn landsins. Thaksin var steypt af stóli í herforingjabyltingu haustið 2006, en flokksbræður hans náðu völdum á ný strax og herforingjastjórnin efndi til kosninga í desember 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×