Chavez fagnar komu rússneskra sprengjuflugvéla 11. september 2008 12:48
Langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar taka nú í fyrsta sinn, síðan kalda stríðinu lauk, þátt í heræfingum í Vesturheimi. Vélarnar fóru framhjá Íslandi í gær og fóru bandarískar orrustuþotur til móts við þær, en þær eru nú staddar hér á landi við æfingar. Hugo Chavez, forseti Venesúela, segir að rússnesku sprengjuflugvélarnar séu nú komnar þangað. Hugo Chavez forseti Venesúela réð sér vart fyrir kæti þegar hann tilkynnti að tvær langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar væru komnar til landsins og að hann ætlaði að fljúga með einni þeirra. Fyrir nokkrum dögum kvartaði Medvedev, forseti Rússlands, undan veru bandarísks flota í Svartahafinu og minnti á að Rússar gætu svarað í sömu mynt. Það virðast þeir nú hafa gert. TU-160 sprengjuflugvélarnar fóru í framleiðslu um það bil sem kalda stríðinu lauk. Með vaxandi olíuauði Rússa, hafa flugmenn þeirra hins vegar fengið ný verkefni, meðal annars það að fljúga meðfram ströndum Íslands. Vera þeirra á æfingum svo nærri Bandaríkjunum á vafalaust eftir að valda pirringi í Washington. Og það finnst Chavez ekkert verra. Hann segist vera að æfa sig í flughermi til þess að geta sjálfur setið við stýri þotunnar. Hann veit líka hvert hann ætlar, því hann leit í myndavélina og sagði við vin sinn á Kúbu: Fídel, ég ætla að fljúga lágflug framhjá þér.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira