Engin leynd yfir reikningum 28. febrúar 2007 15:11 Jakob Möller, lögfræðingur Tryggva Jónssonar, og Linda Jóhannsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs, ræða saman fram á gangi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. MYND/Gunnar
Lokið var að yfirheyra Lindu Jóhannsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, í Héraðsdómi Reykjavíkur um hádegisbil. Linda sagði enga sérstaka leynd hafa verið yfir reikningum sem bárust frá Nordica til Baugs. Tryggvi hefði yfirleitt samþykkt reikningana og hún vitað að þeir hafi verið í tengslum við Vöruhús Jóns Geralds Sullenberger. Áður hafði Jón Gerald lýst því yfir að mánaðarlegar greiðslur frá Baugi til Nordica hafi verið vegna reksturs skemmtibáta í Miami í Bandaríkjunum. Linda var spurð út í einstaka færslur sem tengjast lánveitingum Baugs til Gaums og fleiri. Linda sagði Baug ekki hafa verið í lánastarfsemi en ekki geta sagt til um einstaka færslur í bókhaldi. Linda var einnig spurð út í 19. lið ákærunnar um meintan fjárdrátt Tryggva Jónssonar frá Baugi. Tryggvi hafði sérstakt kort frá Nordica sem honum er gert að hafa notað til að draga að sér fé. Linda sagðist lítið vita um kortið enda hafi hún ekki talið það koma sér við. Linda sagði Jón Ásgeir aldrei hafa gefið fyrirmæli um hvernig færa ætti bókhald Baugs. Hún hafi hins vegar ítrekað fundað með Tryggva út af bókhaldinu. Sumar ákvarðanir varðandi bókhaldið hafi legið hjá henni en aðrar hafi hún rætt við Tryggva. Þórður Bogason, ritari stjórnar Baugs, var yfirheyrður á eftir Lindu. Þórður kom inn í stjórnina árið 2000. Þórður var sérstaklega spurður út í bréf sem hann ritaði eftir fund Hreins Loftssonar, stjórnarformanns Baugs, og Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, í Lundúnum í janúar 2001. Í bréfinu er kallað eftir upplýsingum um rekstur félagsins en Þórður sagði innri endurskoðun hafa farið í gang í fyrirtækinu eftir fundinn.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira