Engin skrautsýning í Víkinni 14. maí 2007 11:00 Í strangri gæslu Ásgrímur Albertsson úr HK var besti maður vallarsins í gær. Hér er hann með Víkinginn Egil Atlason í fanginu. MYND/Daníel
Nýliðar HK fengu sitt fyrsta stig í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í gær eftir litlaust jafntefli við Víkinga á útivelli. Gestirnir voru sprækari í fyrri hálfleik en Víkingar voru líklegri til að ná sigurmarkinu undir lok síðari hálfleiks. Leikurinn byrjaði þokkalega og voru það gestirnir sem voru sprækari. Þeir fengu tvö ágæt færi snemma leiks en Bjarni Þórður Halldórsson var vel á verði. Besta færið í fyrri hálfleik kom þó á 21. mínútu er Oliver Jäger átti skalla í slá eftir frábæra fyrirgjöf Kristjáns Ara Halldórssonar. Leikaðferð HK gekk út á að verjast aftarlega á vellinum en beita svo skyndisóknum. Svo sem skynsamleg aðferð á útivelli sem gekk ágætlega upp. HK-ingar voru fljótir að refsa fyrir mistök í sóknarleik Víkinga sem máttu þakka fyrir að hafa haldið hreinu í fyrri hálfleik. Frammistaða liðanna í síðari hálfleik voru gríðarleg vonbrigði. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins að varamaðurinn Björn Viðar Ásbjörnsson fékk gullið tækifæri til að skora sigurmarkið. Hann fékk boltann á fjærstönginni, einn og óvaldaður, en hitti boltann illa og Gunnleifur greip inn í. Björn Viðar náði öðru skoti að marki skömmu síðar en boltinn fór framhjá. Ólafur Júlíusson, varamaður HK, hafði besta færi sinna manna undir lokin er hann átti skalla að marki eftir hornspyrnu. Ásgrímur Albertsson, varnarmaður HK, átti engar skýringar á því af hverju hans menn voru svo daufir í síðari hálfleik. „Nei, leikurinn þróaðist bara þannig. Ég var ánægður með okkar leik, skipulagið á okkar leik var gott og við vörðumst vel. Við gáfum kannski eftir undir lokin en í heildina fannst mér við hættulegri." Hann var þó ánægður með stigið í frumraun HK. „Við hefðum viljað vinna en sættum okkur við þetta." Af frammistöðu liðanna að dæma er ljóst að þau munu eiga í vandræðum í sumar. Liðin skorti allt frumkvæði og leikmönnum tókst afar sjaldan að gera sér mat úr sóknum sínum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Sjá meira