Innlent

Betri þjónusta fyrir ferðalanga

Andri Már Ingólfsson, forstjóri Primera Travel Group, ásamt íslenskum flugfreyjum Primera Air og dönskum flugmönnum.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri Primera Travel Group, ásamt íslenskum flugfreyjum Primera Air og dönskum flugmönnum. MYND/Hörður

Norræna ferðaskrifstofan Primera Travel Group tók á þriðjudag á móti fyrstu 737-800 farþegaþotunni af fimm fyrir dótturfélagið Primera Air. Vélin er þriggja ára gömul en í maí er von á tveimur nýjum flugfélum beint úr verksmiðju Boeing.

Andri Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Primera Travel Group, segir það mikil tímamót að hafa eigin flugvél til umráða en hingað til hefur félagið leigt vélar fyrir farþega sína. „Þetta er ánægjulegur dagur fyrir okkur og íslenska ferðaþjónustu. Eigin flugvélakostur þýðir meiri sveigjanleika í rekstri og betri þjónustu fyrir ferðaskrifstofurnar og viðskiptavini,“ segir Andri.

Vélin sem Primera Air tók við í gær hafði stutt stopp í Reykjavík og fór þaðan til Keflavíkur. Í dag fer vélin í jómfrúrferð sína með 189 farþega Heimsferða til Rómar.

Farþegaþoturnar fimm munu flytja Norðurlandabúa í sólina en fjölmargar ferðaskrifstofur á Norðurlöndum heyra undir Primera Travel Group.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×