Innlent

Brunakerfi skipti sköpum

Mikinn reyk lagði yfir miðbæinn og um tíma lagði reykinn beint yfir Hótel Borg þar sem mikill fjöldi ferðamanna gistir. Nýtt brunakerfi stóðst álagið og kom í veg fyrir að reykræsta þyrfti hótelið.
Mikinn reyk lagði yfir miðbæinn og um tíma lagði reykinn beint yfir Hótel Borg þar sem mikill fjöldi ferðamanna gistir. Nýtt brunakerfi stóðst álagið og kom í veg fyrir að reykræsta þyrfti hótelið. MYND/Vilhelm

Nýtt brunavarnakerfi sannaði gildi sitt á Hótel Borg í gær en loftræstikerfi lokaðist um leið og reykur tók að berast yfir miðbæinn.

„Við erum nýbúin að taka hér allt í gegn og það munaði miklu. Um leið og brunavarnakerfið fór í gang lokaðist fyrir streymi inn í húsið og það skipti sköpum. Annars hefðum við þurft að reykræsta allt húsið,“ sagði Ólafur Þorgeirsson hótelstjóri skömmu eftir að eldurinn kom upp. Um áttatíu prósent gistirýma hótelsins voru uppbókuð, en samtals eru 56 herbergi á hótelinu. „Við vorum heppin að sleppa að mestu, þótt lítils háttar reykur hafi komið inn á veitingastaðina hérna á neðstu hæðinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×