Umhugsunartími liðinn 13. janúar 2007 01:15 Þýska ríkisstjórnin og framkvæmdastjórn ESB stilla sér upp saman fyrir ljósmyndarana. Merkel kanslari og Barroso forseti fremst fyrir miðju. mynd/ap
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í vikunni að „umhugsunartíminn“ væri liðinn sem leiðtogar Evrópusambandsins gáfu sér til að íhuga hvað gera skyldi við stjórnarskrársáttmála sambandsins eftir að fullgildingu hans var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi snemmsumars 2005. Þýska stjórnin tók við formennskunni í ESB um áramótin og hefur sett sér það markmið að koma sáttmálanum „aftur á flot“ eftir strandið í þjóðaratkvæðagreiðslunum. Merkel viðurkenndi að það væri í mikið ráðist, þar sem samþykki allra aðildarþjóðanna n markmiðið stæði að koma saman áætlun um endurlífgun sáttmálans fyrir lok formennskumisserisins um mitt árið. Átján af aðildarríkjunum 27 hafa þegar fullgilt sáttmálann. Merkel vill að samstaða hafi náðst um nýja uppfærslu stofnsáttmála sambandsins, hvort sem hún verður kennd við stjórnarskrá eða ekki, fyrir næstu kosningar til Evrópuþingsins árið 2009. Í sjónvarpsviðtali sagði Merkel að hún vildi leggja hinn fyrirliggjandi sáttmála til grundvallar. „Við munum ráðfæra okkur við hvert og eitt aðildarríki og finna út úr því hvaða atriði það eru sem þau hafa athugasemdir við og hvaða væntingar og óskir þau hafa hvert fyrir sig um breytingar. […] Við ætlum ekki að byrja frá grunni. Ég tel að það væri alrangt,“ sagði kanslarinn. Í ljósi þess að forsetakosningar fara fram í Frakklandi í vor og forsætisráðherraskipti verða í Bretlandi á árinu væntir Merkel þess ekki að afgerandi ákvarðanir um þessi mál verði tekin fyrr en á formennskumisseri Frakka á næsta ári. En þegar þar að kæmi „ættum við að hafa leyst vandamálin þannig að Evrópa [les: Evrópusambandið] geti látið verkin tala,“ sagði kanslarinn eftir viðræður í Berlín við Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Framkvæmdastjórnin átti samráðsfund með þýsku ríkisstjórninni til að fara yfir dagskrá ESB á formennskumisseri Þjóðverja, en hefð er fyrir slíkum samráðsfundum við upphaf hvers formennskumisseris.
Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Erlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Innlent Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Erlent Fleiri fréttir „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Sjá meira