Playboydómarinn sér ekki eftir neinu 5. september 2007 17:16 Ana Paula Oliveira í Playboy-heftinu umdeilda Mynd/Playboy
Brasilíski aðstoðardómarinn Ana Paula Oliveira segist alls ekki sjá eftir því að hafa setið fyrir nakin í tímaritinu Playboy á sínum tíma, en hún hefur ekki fengið að dæma alvöruleik síðan. Hún hefur þó ekki hætt dómgæslu og hefur að mestu flaggað áhugamannaleiki. Ana hefur alla tíð verið mjög umdeild í heimalandi sínu og var meðal annars sett í bann fyrir að gera fjölda mistaka í bikarleik. Ekki kom hún sér betur í náðina hjá knattspyrnusambandinu þegar hún ákvað að taka fyrirsætustörfin skrefinu lengra og bera sig fyrir Playboy-tímaritið. Hún hefur þó ekki gefið upp alla von um að fá að dæma alvöru leiki á ný. "Ég vil að það sé á hreinu að ég sé ekki eftir neinu, þvert á móti. Ég er sterk persóna og fæ öflugan stuðning hvar sem ég kem. Fólk segir mér að ég muni ná takmarki mínu einn daginn ef ég bara er trú því sem ég er að gera og held áfram ótrauð. Það er ekki eins gaman að dæma áhugamannaleiki, en það hjálpar," sagði Ana við blaðamenn eftir að hún var línuvörður á leik í smábæ um 450 km frá Sao Paulo. Það vakti athygli að gríðarlegur fjöldi áhorfenda mætti á leikinn, nokkur þúsund manns, sem eru fleiri áhorfendur en mæta á suma leiki í efri deildunum í Brasilíu. Ekki virtust þeir allir vera mættir til að fylgjast með leiknum sjálfum. Oliveira hefur ekki enn verið sett í formlegt bann eftir að hún sat fyrir nakin í júlíhefti Playboy, en hún felldi tár skömmu síðar þegar hún bað knattspyrnusambandið um að leyfa sér að dæma á ný. "Ég mun gera hið ómögulega til að fá að snúa aftur," sagði þessi frægi dómari.
Fótbolti Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Sjá meira