Íslenski boltinn

U17 endaði í þriðja sæti

Strákarnir í U17 landsliði Íslands höfnuðu í þriðja sæti síns riðils í undankeppni Evrópumótsins. Fjögur lið voru í riðlinum en íslenska liðið tapaði tveimur leikjum en vann einn.

Eini sigurleikur liðsins kom í dag þegar það vann Litháen 1-0. Ólafur Karl Finsen skoraði mark Íslands í fyrri hálfleik.

Íslendingar voru sterkari aðilinn í leiknum í dag en náðu samt sem ekki að bæta við fleiri mörkum.

Upplýsingar af vef KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×