Erlent

Sjö handteknir vegna hrottalegrar árásar í Danmörku

Lögregla í Danmörku handtók í nótt sjö manns sem hún grunar að hafi ráðist á þrjátíu og fimm ára gamla konu á Jótlandi í gær.  Konan fannst í gær nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Hún var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Málið hefur vakið óhug í Danmörku. Konan var nakin en föt hennar fundust skammt frá staðnum þar sem hún lá. Konan var illa farin og telur lögreglan allt benda til þess að hún hafi orðið fyrir hrottalegu ofbeldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×