Innlent

Skemmdarvargar ganga lausir á Akureyri

Grímuklæddir skemmdarvargar ganga lausir á Akureyri. Þeir rupla og ræna kálgarða og eru kannski að æfa sig fyrir bankarán síðar, segir fórnarlamb skemmdarvarganna.

Skemmdarvargarnir fóru illa með garð í Helgamagrastrætinu á Akureyri. Um síðustu helgi draup þar smjör af hverju strái. Jarðarber, kartöflur og gulrætur stóðu í blóma í matjurtagarði Karenar Malmquist, enda hafði fjölskyldan annast jurtirnar af alúð í sumar og hlakkaði til að njóta uppskerunnar. En síðastliðinn sunnudag komu óboðnir skemmdarvargar í heimsókn og lögðu sumarstarfið í rúst.

Þetta er í fyrsta skipi í 18 ára matjurtasögu fjölskyldunnar við Helgamagrastræti sem garðurinn er rændur. Ekki hefur enn náðst í skemmdarvargana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×