Enski boltinn

Ian Wright tilbúinn að halda með Tottenham

Ian Wright
Ian Wright NordicPhotos/GettyImages

Arsenal goðsögnin Ian Wright segist alveg geta hugsað sér að sitja á White Hart Lane og styðja Tottenham ef sonur hans Shaun Wright-Phillips gengur í raðir liðsins frá Chelsea eins og greint hefur verið frá í bresku blöðunum.

Wright lék á árum áður með Crystal Palace og varð svo markahæsti leikmaður í sögu Arsenal á árum sínum hjá félaginu. Hann fékk oft að heyra það frá stuðningsmönnum Tottenham þegar hann spilaði á White Hart Lane, en hann er tilbúinn að fyrirgefa stuðningsmönnum Tottenham ef sonur hans skiptir um heimilisfang - þó hann segist alls ekki viss um að sonur hans fari frá Chelsea.

"Ef sonur minn vill spila fyrir Tottenham mun ég styðja hann í leik með liðinu. Ef það þýðir að þröngsýnir stuðningsmenn Arsenal bjóði mig ekki lengur velkominn á Emirates-völlinn - eru þeir bara vitleysingar. Ég er íþróttafréttamaður í dag, ég er frá London og ég styð öll lið í borginni," sagði Wright í útvarpsviðtali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×