Erlent

Bíllinn við Hyde Park var fullur af sprengiefnum

Breska lögreglan segir að bíllinn sem fannst í bílageymslunni við Hyde Park hafi verið fullur af sprengiefni. Bíllinn er sömu gerðar og annar bíll sem fannst í nótt, hlaðinn samskonar sprengiefni. Því þykir nær öruggt að málin tengist.

Mikill viðbúnaður hefur verið í Lundúnum frá því í nótt þegar lögregla aftengdi bílsprengju við skemmtistað nærri Haymarket sem er skammt frá Piccadilly Circus og Leicester Square í miðborg Lundúna. Í dag var svo Hyde Park lokað vegna grunsamlegs bíls sem fannst þar.

Lundúnarlögreglan ítrekar fyrir fólki að vera á varðbergi og gefur í skyn að fleiri sprengur kunni að leynast í borginni.

Líklegt þykir að Al-Qaida standi að baki sprengjuáætlununum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×