Erlent

Jákvæð mismunun stangast á við lög

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að jákvæð mismunum í skólum stangist á við lög. Jákvæðri mismunun er ætlað að tryggja jafnari hlutföll kynþátta í skólum. Ákvörðunin kemur í kjölfar kvartana hvítra foreldara barna sem hafði verið meinaður aðgangur að skólum vegna þess að of stór hluti nemenda var hvítur. Niðurstaða réttarins mun hafa áhrif á skólagöngu milljóna barna í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×