Erlent

Alþjóðaráð Rauða krossins gagnrýnir stjórnvöld í Burma

Alþjóðaráð Rauða krossins send í morgun frá sér yfirlýsingu þar sem mannréttindabrot í Búrma eru harðlega gagnrýnd.

Yfirlýsingin er einkar óvenjuleg þar sem hún víkur frá þeirri hlutleysisstefnu sem Alþjóðaráð Rauða krossins tekur almennt. Í henni sagði að aðgerðir stjórnvalda í Búrma hefðu valdið þúsundum gríðarlegum þjáningum. Þau neita að ræða ásakanirnar. Herstjórn situr við völd í landinu.

Alþjóðaráð Rauða krossins hefur ekki sent frá sér svo harðorða yfirlýsingu síðan þjóðarmorðin í Rúanda áttu sér stað fyrir rúmum áratug síðan. Hún er talin merki um að Rauði krossinn telji sig ekki geta náð fram árangri í viðræðum við stjórnvöld í Búrma.

Þá er fullyrt að herinn láti fanga vinna fyrir sig, svelti þá og drepi. Einnig er fullyrt að fólk í landamærahéruðum við Taíland verði sérstaklega illa úti. Alþjóðaráðið segir að það hafi sannanir fyrir öllum þeim ásökunum sem upp eru taldar.

Í október á síðasta ári lokuðu stjórnvöld í Búrma nokkrum skrifstofum alþjóðaráðsins í landinu og bönnuðu fulltrúum þess að heimsækja fólk sem haldið er föngnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×