Forseti Venesúela eyddi 62 milljörðum í Copa America 25. júní 2007 09:37 Copa America hefst annað kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með flesta leiki í beinni útsendingu NordicPhotos/GettyImages
Keppnin um Suður-Ameríkubikarinn í knattspyrnu, Copa America, hefst með látum í Venesúela annað kvöld með tveimur leikjum. Sjónvarpsstöðin Sýn mun gera mótinu góð skil og verður með tvær beinar útsendingar strax fyrsta kvöldið þegar Úrúgvæ mætir Perú og heimamenn í Venesúela taka á móti Bólivíu. Handhafar titilsins, Brasilíumenn, eru ásamt Argentínumönnum taldir sigurstranglegastir í keppninni. Brassar sigruðu Argentínumenn í vítakeppni þegar keppnin var síðast haldin í Perú fyrir þremur árum og hafa Argentínumenn reyndar ekki sigrað í keppninni í 14 ár. Þetta er í 42. sinn sem Copa America er haldin og á keppnin rætur að rekja allt til ársins 1916. Keppnin nú stendur yfir frá 26. júní til 15. júlí. Copa America er jafnan haldin á tveggja ára fresti nema þegar keppnin rekst á við HM og er oft á tíðum góður gluggi fyrir knattspyrnumenn frá álfunni til að sýna sig fyrir útsendurum félagsliða frá Evrópu. Brasilíumenn eru í B-riðli mótsins ásamt Mexíkóum, Chile og Ekvador og hefur Dunca þjálfari kosið að koma til leiks með nokkuð breytt lið frá því þegar Brassar féllu óvænt úr leik gegn Frökkum á HM síðasta sumar. Ronaldinho og Kaka hafa báðir farið þess á leit að fá frí frá keppninni og bera við þreytu frá löngu tímabili með félagsliðum sínum. Þeirra í stað fengu menn eins og Elano frá Shaktar Donetsk og Wagner Love frá CSKA Moskvu tækifæri og þá verður áhugavert að fylgjast með miðjumönnunum Anderson og Joshua, bakverðinum Kleber og varnarmanninum Alex Silva. Alfio Basile, þjálfari Argentínumanna, hefur ákveðið að mæta til leiks með lið sem er blanda af reyndum og yngri leikmönnum. Framlína liðsins verður ekki árennileg þar sem menn á borð við Carlos Tevez, Lionel Messi, Hernan Crespo og Juan Roman Riquelme verða í broddi fylkingar. Aldrei fyrr hefur öðrum eins fjárhæðum verið varið í að gera Copa America jafn glæsilegt mót, en Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur mokað rúmum 60 milljörðum í keppnina til að sjá til þess að allt verði eins og best verður á kosið í mótshaldinu. Þessar tölur eru ótrúlegar í ljósi þess að engin þjóð hefur varið meira en 25 milljónum dollara í keppnina á síðasta rúma áratug. Þrír nýir leikvangar hafa verið reistir fyrir keppnina og sex endurbyggðir rækilega. Þá hefur allt samgöngukerfi verið tekið rækilega í gegn í þeim níu borgum þar sem spilað verður í keppninni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með fjölda beinna útsendinga frá keppninni eins og áður sagði, en greint verður frá því reglulega hér á Vísi hvaða leikir eru í beinni hverju sinni. Fyrsti stórleikurinn í keppninni er á dagskrá strax á miðvikudagskvöldið þar sem Brasilíumenn mæta Mexíkó eftir miðnætti.
Fótbolti Mest lesið Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Handbolti Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Enski boltinn Hafþór hrósar læknum „Steraleikanna“ og segist treysta þeim alveg Sport Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Handbolti Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Handbolti Uppgjöfin fyrir Mbappé hafi markað endalok Alonso Fótbolti Extra-leikarnir: „Fannst þessi einkunnagjöf lykta af smá Kópavogsmeðvirkni“ Körfubolti Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Enski boltinn „Hlutir sem ég hefði ekki getað gert ef ég væri að spila“ Körfubolti Kastaði stól í leikmann og er á leið í fangelsi Sport Fleiri fréttir Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Carrick tekinn við Manchester United Í beinni: Newcastle United - Manchester City | Undanúrslitaeinvígið hefst Segir Gumma Tóta á leið heim úr atvinnumennsku Simeone baðst afsökunar á rifrildinu við Vinícius Junior Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Tveir ungir varnarmenn til FH Uppgjöfin fyrir Mbappé hafi markað endalok Alonso Segja að Real Madrid vilji fá Jürgen Klopp Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Litla liðið í París sló út stórveldi PSG Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mikael Egill spilaði nær allan leikinn í sterkum sigri Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu og sló andstæðing Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Davíð Kristján keyptur til Grikklands Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Segir að Brasilía þurfi á Neymar að halda Alonso látinn fara frá Real Madrid Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Katarar vilja halda fyrsta HM félagsliða hjá konunum Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Hannover staðfestir kaupin á Stefáni Teiti Sjáðu magnaða vörslu hins 43 ára Gordon: „Ein mín besta á ferlinum“ Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Sjá meira