Fótbolti

Slúðrið í enska boltanum í dag

Eiður er víst á óskalista nýliða Sunderland en Roy Keane er stjóri þar á bæ.
Eiður er víst á óskalista nýliða Sunderland en Roy Keane er stjóri þar á bæ. MYND/AFP

Á hverjum degi segja ensku blöðin fjöldan allan af leikmönnum vera við það að skipta um lið. Breska ríkisútvarpið, BBC, safnar helstu sögunum saman á morgni hverjum og má sjá orðrómana hér. Þeirra á meðal er einn um að Eiður Smári Guðjohnsen sé á óskalista nýliða Sunderland.

Félagaskiptaslúður

Manchester United ætlar að bjóða 27,5 milljónir punda og Louis Saha, sem metinn er á 11 milljónir punda fyrir framherja Spurs, Dimitar Berbatov (Sun).

Á innkaupalista Liverpool í sumar eru meðal annars Samuel Eto'o, Carlos Tevez, Daniel Alves and Gabriel Milito (Sun).

Varnarmaður Liverpool, Sami Hyypia, er hættur við að ganga til liðs við Fulham þar sem ekki náðust samningar um laun hans (Daily Mirror).

Sunderland hefur gert 2 milljón punda tilboð í markvörð Bolton, Jussi Jaaskelainen, en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið (Ýmsir).

Sunderland ætlar sér einnig að bjóða í Eið Guðjohnsen - En einnig er búist við því að West Ham, Portsmouth og Newcastle eigi eftir að reyna að fanga kappann (Daily Star).

Real Madrid ætlar sér að bjóða 15 milljónir í miðjumann Arsenal, Cesc Fabregas (Daily Mirror).

Newcastle mun bjóða 5 milljónir punda í Leighton Baines - sem finnst að hann þurfi að fara frá Wigan til þess að auka möguleika sína á því að komast í landsliðið (Daily Star).

Chelsea hefur tryggt sér réttinn á því að kaupa 20 ára varnarmann PSV Manuel da Costa fyrir lok maí á næsta ári (Daily Mirror).

Liverpool er tilbúið að hlusta á tilboð í Craig Bellamy - sem Aston Villa og Blackburn hafa áhuga á (Daily Express).

Chelsea hefur boðið 10 milljónir punda í varnarmann Tottenham, Pascal Chimbonda (Daily Mail).

Tottenham á í viðræðum við Sporting Lisbon um kaup á kantmanni þeirra Nani sem metinn er á 13,5 milljónir punda (Times).

Arsenal hefur rætt við Atletico Madrid í tilraun til þess að losa sig við Jose Antonio Reyes (Daily Mail).

West Ham er að undirbúa 5 milljón punda tilboð í varnarmann Reading, Nicky Shorey (Sun).

Watford er við það að kaupa markmann Arsenal, Mart Poom (Daily Mirror).

Annað Slúður

Glazer fjölskyldan er tilbúinn að hlusta á tilboð í Manchester United aðeins þremur árum eftir að hafa keypt félagið (Daily Mirror).

Framkvæmdastjóri Celtic, Gordon Strachan, er talinn líklegur kandídat sem stjóri Manchester City (Sun).

Freddy Shepherd verður bolað úr sæti sínu sem formaður Newcastle ef Mike Ashley tekst ætlunarverk sitt að kaupa félagið (Independent).

Ashley ætlar sér að ljúka kaupunum fyrir upphafið á næsta tímabili (Guardian).

Að Lokum

Liðið Shrewsbury varð að kaupa nýja búninga á liðið fyrir úrstlitaleikinn í ensku annarri deildinni eftir að leikmenn félagsins hentu treyjum sínum og stuttbuxum til áhorfenda eftir sigur í undanúrslitum deildarinnar á móti MK Dons (Daily Star).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×