Enski boltinn

West Ham verður áfram í úrvalsdeildinni

MYND/AP

Íslendingaliðinu West Ham United tókst nú fyrir nokkrum mínútum að forða sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Carlos Tevez argentínski sóknarmaðurinn sem tryggði áframhaldandi veru liðsins í deildinni með því að skora gegn Manchester United á Old Trafford. Leikurinn fór 0 -1 fyrir West Ham.

Þá forðaði Wigan sér frá falli með 2 -1 sigri á Sheffield United. Tap Sheffield þýðir að þeir leika í fyrstu deild að ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×