Enski boltinn

Lögregla yfirheyrir Barton vegna árásar á liðsfélaga

MYND/AP

Lögregla í Manchester-borg hyggst yfirheyra Joey Barton, leikmann Manchester City, vegna slagsmála við félaga hans, Ousmane Dabo, á æfingu.

Barton á að hafa ráðist á Dabo og látið hann finna fyrir því þannig að Dabo ákvað að kæra hann. Barton, sem ítrekað hefur orðið uppvís að agabrotum á ferli sínum, hefur verið settur út úr liði Manchester City vegna málsins og búist er við að hann fari frá félaginu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×