Innlent

Sex fíkniefnamál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt að því er kemur fram í frétt frá lögreglunni. Um miðnætti hafði lögregla afskipti af þremur mönnum á þrítugsaldri í þremur aðskildum málum en í fórum þeirra fundust fíkniefni sem talið er að sé marijúana.

Þá fundust kannabisefni í bíl karlmanns á þrítugsaldri í Breiðholti og í sama hverfi stöðvuðu lögreglumenn 18 ára pilt sem er grunaður um fíkniefnamisferli.

Á öðrum stað í borginni fundust hass og amfetamín við húsleit, það síðarnefnda í neysluskömmtum. Einn var handtekinn vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×