Fótbolti

Love tryggði Brössum sigur

AFP

Brasilía lagði Gana í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Solna í Svíþjóð í gærkvöldi. 20 þúsund áhorfendur voru mættir á Rosunda-leikvanginn fyrir utan Stokkhólm til að berja brasilísku goðin augum.

Eina mark leiksins skoraði hinn 22 ára sóknarmaður CSKA Moskvu, Wagner Love í fyrri hálfleik eftir hornspyrnu frá Ronaldínjó. Brasilíumenn eru nú að undirbúa sig fyrir Suður-Ameríkukeppnina sem hefst í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×